Forsíða | Netverslun | Flugur | Fréttir | Myndir | Greinar | galleriflugur.is |     
<September 2010 >
SMÞMFFL
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Daiichi 1170


Pink Lady
Pink Lady hnýtt á einkrækju #10


   NETFANG: galleriflugur@galleriflugur.is
LITLA FLUGAN og GALLERÍ FLUGUR

LITLA FLUGAN ehf er sérverslun fluguhnýtarans og er verslunin staðsett í Hryggjarseli 2 (fremra húsi - bjalla við dyrnar)

GALLERÍ FLUGUR er netverslun. Þar getur þú pantað þær vörur sem þú sérð á þessari vefsíðu eða haft samband á galleriflugur@galleriflugur.is

Í LITLU FLUGUNNI er töluvert meira úrval en á netsíðunni. Við bjóðum upp á ágætt úrval öngla (Partridge of Redditch, Ken Sawada, Daiichi, OS króka), fluguhnýtingaefni eins og kúlu- og keiluhausa, kopartúpur í gulli, silfri, svörtu og koparlit. Plasttúpur og áltúpur stærðir frá 1/2"-2" ,einnig Bucktails í vinsælustu snældurnar, refhár, íkornaskott, Tempel dog hár og zonkerstrips eða kanínuræmur fyrir túpur og straumflugur. Ekki má gleyma geitinni vinsælu sem notuð er m.a. Sun Rey Shadow og Collie Dog. Einnig fást hænuhnakkar. Einnig fást falleg flugu- og túpubox auk þess sem verslunin býður upp á flugur og túpur hnýttar af Viðari Egilssyni. Í versluninni fæst auk þess margvísleg gjafavara og bækur.  Nú hafa Partridge flugustangir og fluguhjól bæst við vöruúrvalið, auk taumefni frá STROFT. Við seljum einnig byrjendapakka fyrir fluguhnýtara með eða án Vise.

Sjón er sögu ríkari

Staðsetning verslunar: Hryggjarsel 2, 109 Reykjavík.

Nánari leiðarlýsing: Frá Mjóddinni heldur þú áfram Skógarselið (framhjá N1, ÍR heimilinu, Seljakirkju). Beygir til hægri hjá lítilli tjörn (andapollur) upp Holtasel og svo strax aftur til vinstri í Hryggjarsel.

 



Til baka | Forsíða
Web Counter by TrafficFile.com